flugfréttir
Ríkisstjórn Indlands hættir við að selja Air India í bili
Flugvélar Air India
Ríkisstjórn Indlands hefur hætt við áform sín um að selja ríkisflugfélagið Air India þar sem ekki hefur tekist að finna áhugasama fjárfesta til að kaupa 76 prósent í félaginu.
Flugmálaráðherra landsins segir að ríkisstjórnin ætli að fara betur yfir áætlanir sínar og mögulega reyna að selja
félagið síðar þegar betra tækifæri gefst.
Þess í stað verður aukafjármagn sett í reksturinn og skorið verður niður til að auka hagnað félagsins.
Flugupplýsingafyrirtækið CAPA (Center for Aviation) telur að Air India muni falla meira í verði því lengur sem ríkisstjórnin dregur það að selja og einkavæða félagið og gætu skuldir Air India aukist um allt að 2 milljarða dali á næstu tveimur árum
með áframhaldandi eignarhalds af ríkinu.
Air India hefur misst stóran hluta af markaðshlutdeild sinni í innanlandsfluginu á Indlandi til
lágfargjaldafélaganna IndiGo og SpiceJet sem nú eru að hefja umsvif sín í millilandaflugi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.