flugfréttir

Turkish Airlines þarf 1.000 nýja flugmenn á hverju ári

- Fara af stað með „cadet-prógram“

25. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:35

Turkish Airlines ætlar einnig að ráða reynda flugmenn erlendis frá sem eru komnir á starfslokaaldur til þess að þjálfa nýja flugmenn

Turkish Airlines segist þurfa að ráða allt að 1.000 nýja flugmenn árlega næstu árin til þess að fljúga þeim nýju þotum sem eru að bætast við í flota félagsins.

Það var Abdulkerim Cay, yfirmaður yfir starfsmannadeild félagsins, sem tilkynnti blaðamönnum þetta í Istanbul á dögunum og segir hann að til stendur að auka umsvif Turkish Airlines til muna þegar nýi flugvöllurinn í Istanbul verður tekinn í notkun í haust.

Á vefsíðu Turkish Airlines kemur fram að félagið ætlar sér að þjálfa sína eigin flugmenn og geta áhugasamir einstaklingar sótt um svokallað „cadet program“ eða flugnámsleið.

Inntökukröfur eru m.a. þær að viðkomandi sé yngri en 35 ára, hafi rétt á að starfa í Tyrklandi, sé a.m.k. 157 sentimetrar á hæð og hafi lágmarks menntun eða háskólagráðu.

Frá flugvellinum í Ankara

Turkish Airlines sér fram á alvarlegan flugmannaskort ef ekkert er að gert en félagið hefur í dag yfir 320 þotur í flota sínum og eiga um 220 eftir að bætast við til viðbótar á næstu árum.

Flugfélagið gerir ráð fyrir því að rjúfa „500 flugvélamúrinn“ eftir aðeins fimm ár og þarf félagið því að vera viðbúið því að hafa næga flugmenn tiltæka til að fljúga þeim vélum sem væntanlegar eru í flotann.

Þá ætlar félagið að ráða erlenda flugmenn sem hafa hætt störfum og fá þá til sín sem þjálfunarflugmenn og einnig ætlar félagið að ráða erlenda leiðbeinendur á flugherma til að anna eftirspurninni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga