flugfréttir
Júmbó-fraktþota eyðilagði vindsokk í fráhvarfsflugi
Boeing 747-400F fraktþota frá China Airlines Cargo á O´Hare-flugvellinum í Chicago
Kínversk fraktþota af gerðinni Boeing 747-400F frá China Airlines Cargo eyðilagði vindpoka á O´Hare-flugvellinum í Chicago á dögunum er vélin snerti jörð fyrir utan flugbrautina áður en hún fór í fráhvarfsflug (go-around).
Flugvélin var í ILS aðflugi að flugbraut 10L í Chicago eftir flug frá Anchorage í Kanada þegar flugmenn vélarinnar ákváðu
á síðustu stundu að hætta við lendingu þar sem vélin hafði vikið frá aðflugslínunni þegar hún var við það að lenda.
Flugmenn á annarri flugvél, sem var fyrir aftan í aðfluginu, sögðu að vélin hefði stefnt á grassvæði milli flugbrautarinnar
og akbrautarinnar.
Flugvélin fór í fráflug á síðustu stundu en við skoðun á brautinni fannst brak auk þess sem vindsokkurinn var ónýtur og
var flugbrautinni lokað í 50 mínútur í kjölfarið.
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) segja að aðalhjólastell júmbó-þotunnar hafi snert grasið rétt áður en hætt var við lendinguna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.