flugfréttir

Tæplega 1.300 flughermar í notkun í heiminum

26. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:47

CAE Inc. er stærsti framleiðandi flugherma í heiminum í dag

Fjöldi þeirra flugherma í heiminum, sem flugfélögin nota við þjálfun áhafna, nálgast nú 1.300 eintök en í dag eru 1.270 flughermar í notkun og hefur þeim fjölgað um fimmtíu frá því á sama tíma í fyrra.

Um 85% þessara flugherma eru flughermar í fullri stærð af fullkomnustu gerð sem nefnast „Full Flight Simulator“ sem skammstafað er sem FFS.

Fram kemur að kanadíska fyrirtækið CAE sé enn það stærsta á markaðnum er kemur að þróun og framleiðslu á flughermum og eru um 56% allra flugherma í heiminum frá CAE Inc.

Þá er breska fyrirtækið L3 Commercial Training Solutions með 20% markaðshlutdeild og FlightSafety International með 10% af markaðnum samkvæmt tölfræði.

Boeing 737 MAX flughermir

38% allra flugherma er að finna í Norður-Ameríku, 25% flugherma eru staðsettir í Asíu og á Kyrrahafssvæðinu og 24% flugherma eru í notkun í Evrópu.

Tæplega helmingur allra flugherma, eða 45% af þeim, líkir eftir flugvélum frá Boeing á meðan 45% flugherma eru Airbus-hermar. Þá eru 7% flugherma Embraer-hermar, sex prósent eru Bombardier-hermar og 3% líkja eftir flugvélum frá ATR.

Flughermaframleiðendur hafa ávallt boðið upp á nýjust hermana á sama tíma og nýjar flugvélategundir koma á markaðinn svo hægt sé að bjóða upp á þjálfun á þær tegundir en til að mynda þá var fyrsti Boeing 777X flughermirinn seldur til Lufthansa í október 2017 en sá flughermir er framleiddur af CAE.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga