flugfréttir

Emirates fær flugmenn að láni frá Etihad Airways

- Ávinningur fyrir bæði flugfélögin

26. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:09

Risaþotur Etihad Airways og Emirates á JFK-flugvellinum í New York

Etihad Airways ætlar að lána flugmenn yfir til Emirates sem hefur orðið fyrir töluverðum flugmannaskorti en fram kemur að ávinningurinn sé mikill fyrir bæði félögin.

Þónokkrir flugmenn hafa að undanförnu yfirgefið Emirates og er um að ræða erlenda flugmenn sem hafa snúið við til síns heimalands þar sem vantað hefur flugmenn í þeirra landi og gefst þeim því kostur á að snúa aftur til fjölskyldna sinna.

Emirates þurfti í vor að draga saman seglin og draga úr tíðni til einhverja af þeim áfangastöðum sem félagið flýgur til en með því að fá flugmenn frá Etihad Airways yfir til sín þá gæti svo farið að niðurskurður í leiðarkerfinu verði ekki eins mikill og séð var fram á.

Saj Ahmad, sérfræðingur í flugmálum hjá breska fyrirtækinu StrategicAero, segir að með þessu þá mun Etihad Airways ná að lækka rekstrarkostnað sinn með því að lána nokkra flugmenn og Emirates nær að manna strax áhafnir með reyndum flugmönnum.

Etihad Airways tilkynnti flugmönnum sínum að þeim stæði til boða að gangast til liðs við Emirates í a.m.k. tvö ár en talsmaður Etihad Airways segir að þetta sé eitthvað sem félagið hafi gert í nokkur ár í samstarfi við samstarfsflugfélög sín til að hagræða í stafsmannamálum.

Etihad Airways mun fá flugmennina aftur til baka þegar þeir þurfa á þeim að halda á ný

„Með þessu fyrirkomlagi þá ná flugfélög að halda mannaflanum stöðugum og með því næst meiri sveigjanleiki í stjórnun á starfsmannamálum er kemur að flugmönnum“, segir talsmaður félagsins.

Etihad Airways getur síðan kallað flugmennina sína yfir aftur eftir tímabilið og mun það því ekki missa flugmennina þrátt fyrir að þeir séu að fljúga fyrir annað félag.

Þá er talið ólíklegra að Etihad Airways muni hætta við pöntun í Boeing 777X þar sem félagið getur fengið flugmennina aftur til baka.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga