flugfréttir
Fyrsta ACJ320neo einkaþotan fer í lokasamsetningu
Fyrsta ACJ320neo þotan í samsetningu í Hamborg
Fyrsta einkaþotuútgáfan af Airbus A320neo er farin í lokasamsetningu í verksmiðjum Airbus í Hamborg.
Þotan, sem nefnist ACJ320neo, verður á síðasta ársfjórðungi
afhent til viðskiptavinarins sem er Acropolis Aviation í Bretlandi en Airbus
mun á sama tíma einnig afhenda næsta eintakið sem fer til Comlux í Sviss.
Airbus ACJ320neo tekur allt að 25 farþega og getur einkaþotan flogið 11.000 kílómetra
og hefur flugþol upp á þrettán klukkustundir á meðan ACJ310neo getur flogið
með átta farþega í 15 klukkustundir.
Í dag hefur Airbus fengið pantanir í níu ACJ-einkaþotur; þrjár af gerðinni ACJ319neo
og sex ACJ320neo þotur en þess má geta að ACJ stendur fyrir „Airbus corporate jets“.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.