flugfréttir

Flugmaður sendi óvart frá sér merki um flugrán á JFK

- Ætlaði að láta vita að talstöðin væri biluð

27. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 10:56

Fjöldi lögreglubíla og slökkviliðsbíla umkringdu vélina í gærkvöldi á JFK-flugvellinum

Mikill viðbúnaður var í New York í gær þegar farþegaþota frá JetBlue sendi óvart frá sér merki um að vélinni hefði verið rænt skömmu fyrir brottför frá John F. Kennedy flugvellinum.

Ekki var þó um flugrán að ræða heldur mistök þar sem annar flugmaðurinn hafði óvart stillt á merki um flugrán þegar hann ætlaði að senda frá sér merki til flugturns um að talstöðin væri biluð.

Merkin tvö eru meðal þeirra þriggja neyðarkóða sem samanstanda af númerum en fyrir bilaða talstöð er kvakað „7600“ en flugmaðurinn setti óvart inn „7500“ sem tilkynnir um að för flugvélar hafi verið hindrað með ólögmætum hætti sem þýðir einfaldlega að flugrán sé í gangi.

Þar sem talstöðin var biluð náðu flugumferðarstjórar engu talsambandi við flugmennina og bar því búist við því versta sem þýddi að hámarksviðbúnaður var settur í gang.

Skjáskot úr sjónvarpsfréttum vestanhafs í gærkvöldi af atvikinu

Allt tiltækt lið lögreglu og slökkviliðs fór í átt að þotunni sem umkringdi vélina auk þess sem sérsveitarlögregla kom í veg fyrir að þotan færi lengra né í áttina að flugstöðinni og þá mætti bandaríska alríkislögreglan (FBI) og Heimavarnarliðið einnig á vettvang.

Fram kemur að flugstjóri þotunnar hafi skrifað símanúmerið sitt á blað og haldið blaðinu við einn af gluggum stjórnklefans til að benda á að hægt væri að hringja beint í hann.

Vopnaðir sérstveitarmenn fóru um borð og voru farþegar beðnir um að hafa hendur á lofti er þeir gengu um farþegarýmið á meðan verið var að ganga úr skugga um flugrán.

Alls voru tíu þungvopnaðir sérsveitarmenn sem fóru um borð í flugvélina

Í yfirlýsingu frá JetBlue kemur fram að vandamál með fjarskiptabúnað hefði komið upp í flugvélinni er hún var að aka í átt að flugbraut á JFK flugvellinum klukkan 20:00 að staðartíma.

Yfirvöld segja að fljótlega hafi komið í ljós að engin hætta var á ferðum og óskuðu flugmennirnir eftir því að fara aftur að flugstöðinni.

Vélin var toguð að hliði eftir 1.5 klukkustund en atvikið olli seinkun á flugumferð á JFK-flugvellinum og hafa bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafið rannsókn á málinu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga