flugfréttir
Virgin mun hætta að fljúga til Dubai
Airbus A350-600 þota Virgin Atlantic á flugvellinum í Dubai
Virgin Atlantic hefur tilkynnt að félagið muni hætta að fljúga til Dubai en félagið hefur flogið þangað sl. 12 ár.
Í yfirlýsingu frá Virgin kemur fram að flugið til Dubai sé ekki lengur félaginu arðbært vegna ýmissa þátta en félagið
hefur flogið daglega til Dubai frá London Heathrow frá árinu 2006 en síðasta flugið verður flogið þann 31. mars 2019.
„Það er aldrei auðveld ákvörðun að fella niður flugleið og við viljum þakka viðskiptavinum okkar fyrir og starfsfólki
okkar í Dubai fyrir þessi tólf ár“, segir Shai Weiss, forstjóri Virgin Atlantic.
Félagið er ekki það eina sem hefur hætt flugi til Dubai en Royal Brunei Airlines hafði viðkomu í Dubai á flugleiðinni
milli London Heathrow og Bandar Seri Begawan en mun hætta að hafa viðkomu í Dubai frá og með haustinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.