flugfréttir
Boeing biður um tillögur að hreyfli fyrir Boeing 797
Boeing sendi beiðni um tillögu að hreyfli fyrir Boeing 797 til Rolls-Royce, CFM International og til Pratt & Whitney
Boeing hefur formlega beðið hreyflaframleiðendur um að koma með tilboð í nýjan hreyfil fyrir Boeing 797 sem til stendur að komi á markaðinn árið 2025.
Beiðni um tillögur að hreyfli fyrir nýju þotuna var send til Rolls-Royce, CFM International og Pratt & Whitney á dögunum
og rann frestur út í gær til þess að koma með þær hugmyndir sem framleiðendurnir hafa í huga.
Sú krafa sem Boeing gerði til hreyfilsins var sú að hann skuli skila af sér afli upp á 45.000 lbs til að knýja áfram
breiðþotu af minni gerðinni sem kemur í tveimur stærðarútgáfum.
Annars vegar NMA-6X sem tekur 228 farþega og hefur flugdrægi upp á 5.000 mílur (nm) og NMA-7X sem
tekur 267 farþega og hefur flugþol upp á 4.200 mílur (nm).
Farið er fram á að nýi hreyfillinn sé 25% hagkvæmari samanborið við þá hreyfla sem knýja áfram þotur á borð
við Boeing 757.
Aðili, sem er kunnugur málinu, segir að Boeing ætlar sér að vera komið með á hreint hvaða hreyfill kemur til greina
langt áður en framleiðsluferlið hefst en hingað til hefur hreyflategund verið valin rétt áður en framleiðslan hefst á nýrri þotu.
Boeing ætlar að koma með Boeing 797 á markaðinn árið 2025
Ekki er vitað hvort að Boeing ætli að bjóða upp á fleiri en eina tegund hreyfils fyrir Boeing 797 en það veltur á ýmsum
þáttum og einnig stöðuna hjá hreyflaframleiðendunum sem flestir eiga í basli við að lagafæra galla á núverandi hreyflum
sem hafa komið nokkrum flugfélögum í vanda.
Sandy Morris, flugsérfræðingur hjá fyrirtækinu Jefferies, telur að CFM International komi mjög sterklega til greina
og sé mjög líklegt að sá framleiðandi komi með sérstaka útgáfu af GE9X hreyflinum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.