flugfréttir

ATR tekur ekki áhættu á því að afhenda fleiri flugvélar til Íran

- Riftun kjarnorkusamkomulagsins setur allt úr skorðum

29. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:44

Fjórar fyrstu ATR 72-600 flugvélarnar sem afhentar voru til Iran Air

Flugvélaframleiðandinn ATR hefur gefist upp á því að reyna að halda afhendingaráætlun sinni varðandi þær tólf flugvélar sem til stóð að afhenda til Iran Air á þessu ári.

Ástæðan er sú að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, afturkallaði ákvörðun stjórnvalda um að aflétta viðskiptaþvingunum við Írani og breytti kjarnorkusamkomulaginu sem undirritað var árið 2015 sem varð til þess að Íranir pöntuðu hundruði flugvéla frá Boeing, Airbus og fleiri framleiðendum.

Iran Air pantaði tuttugu ATR 72-600 flugvélar í apríl í fyrra og hefur félagið fengið átta afhentar en ATR segist ekki taka áhættuna á því að afhenda fleiri flugvélar til Iran Air eins og staðan er í dag.

„ATR tekur ekki áhættuna gagnvart bandarískum stjórnvöldum vegna samstarfsins okkar við Leonardo og Airbus“, segir Christian Scherer, framkvæmdarstjóri ATR.

Christian Scherer, framkvæmdarstjóri ATR

Tvær af þessum vélum eru tilbúnar, sex eru í samsetningu og fjórar eru á leið í framleiðslu og hafa þær verið merktar í kerfinu fyrir Iran Air en Scherer segir að verið sé að vinna hörðum höndum að því að finna lausn á vandanum.

„Bandarísk stjórnvöld gáfu fyrirtækjum þrjá mánuði, frá júní og út ágúst til þess að afhenda sínar vörur til Íran sem búið er að framleiða. Fyrir flugiðnaðinn þá er þetta tímabil fáránlega stutt“, segir Scherer.

Ákvörðun Bandaríkjanna um að breyta kjarnorkusamkomulaginu við Írani mun sennilega hafa áhrif á afkomu ATR þar sem Íranir hafa kauprétt á tuttugu ATR flugvélum til viðbótar auk þess sem búið var að semja um þjálfunarþjónustu fyrir íranska flugmenn og flugvirkja.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga