flugfréttir

Brandenburg verður bílageymsla fyrir Volkswagen

- Þúsundir nýrra bíla bíða þess að fara í útblástursprófanir

29. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:56

Þýski bílaframleiðandinn Volkswagen hefur fengið leyfi til að nota flugvallarsvæðið sem geymslu fyrir þúsundir nýrra bíla

Brandenburg-flugvöllinn í Berlín mun loksins þjóna einhverjum tilgangi þar sem búið er að finna not fyrir flugvöllinn sem ekki hefur verið hægt að taka í notkun í nokkur ár vegna fjölda framleiðslugalla sem enn er verið að lagfæra.

Þýski bílaframleiðandinn Volkswagen hefur fengið leyfi til að nota flugvallarsvæðið sem geymslu fyrir þúsundir nýrra bíla sem ekki hefur verið hægt að afhenda þar sem þeir standast ekki umhverfisreglugerðir varðandi útblástur.

Volkswagen komst í fréttirnar árið 2015 vegna skandals vegna blekkinga í útblástursprófunum þegar framleiðandinn varð uppvís að því að hafa komið fyrir búnaði í um 11 milljónum nýrra díselbíla um allan heim í þeim tilgangi að svindla á prófunum.

Þetta varð til þess að Volkswagen þurfti að kaupa til baka og gera við 475.000 bíla og greiða eigendum fleiri hundruð milljónir króna í bætur vegna þessa.

Um 300.000 nýir bílar frá Volkswagen hafa verið geymdir á 37 mismunandi stöðum í Bandaríkjunum

Þúsundir bíla bíða þess að fara núna aftur í gegnum útblástursprófanir og hefur Volkswagen verið í miklum vanda með að finna pláss til þess að geyma alla þessa bíla og því varla hægt að finna betri stað en draugaflugvöll sem staðið hefur auður í meira en hálfan áratug.

„Eins og er þá er okkar hefðbundna geymslusvæði ekki nóg fyrir þennan fjölda. Bílunum verður komið fyrir í geymslu á prófunarsvæðum Volkswagen nálægt Wolfsburg og á Brandenburg-flugvellinum í Berlín“, segir talsmaður Volkswagen sem situr nú uppi með 250.000 nýja bíla sem bíða þess að fara í útblástursprófanir.

Ekki er vitað hversu mörgum bílum verður komið fyrir á Brandenburg-flugvellinum

Brandenburg-flugvöllurinn átti upphaflega að opna árið 2011 en opnun hans var seinkað það oft að hætt var við að birta nýja opnunardagsetningu en í dag er áætlað að taka flugvöllinn loksins í notkun árið 2020.

Upphaflega stóð til að opna Brandenburg-flugvöllinn árið 2011







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga