flugfréttir
Öxull á Boeing 777 brotnaði í lendingu í Tókýó
Atvikið átti sér stað á Narita-flugvellinum í Tókýó í dag
Öxull brotnaði á hjólastelli í lendingu á farþegaþotu af gerðinni Boeing 777-300 frá Korean Air við lendingu á Narita-flugvellinum í Tókýó í morgun.
Þotan var að koma frá Seoul í Suður-Kóreu og var vélin nýlent þegar einn af öxlunum þremur á hægra aðalhjólastelli
féll saman.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Suður-Kóreu er á leið til Tókýó til þess að skoða þotuna og rannsaka atvikið og verður
m.a. athugað hvort það megi rekja til viðhalds vélarinnar.
Samkvæmt upplýsingum þá kemur fram að þotan hafi rásað til og frá á brautinni eftir lendingu er hún var að stöðva
sig af en töluverður vindur var er vélin lenti.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Suður-Kóreu mun rannsaka atvikið
Vélin lenti á braut 16L en samkvæmt METAR-upplýsingum þá var suðvestlæg
átt með hviðum upp í 24 hnúta sem samsvara 12 metrum á sekúndu.
Fram kemur að lendingin hafi verið frekar hörð þar sem brak
fannst á brautinni og þá er líklegt að mikið álag hafi komið á hjólastellið er vélin sveigði til á frá á brautinni.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.