flugfréttir
Nepal Airlines fær fyrstu breiðþotuna
Fyrsta breiðþota Nepal Airlines
Nepal Airlines hefur fengið sína fyrstu breiðþotu sem er þota af gerðinni Airbus A330 sem félagið fær frá ACC Corporation í samstarfi við flugvélaleiguna HiFly í Portúgal.
Breiðþotan, sem er af gerðinni Airbus A330-200, verður stærsta flugvélin sem mun fljúga um Tribhuvan-flugvöllinn
í Kathmandu en Nepal Airlines á von á annarri A330 breiðþotu fljótlega á næstunni.
Brotið verður blað í sögu Nepal Airlines en breiðþoturnar tvær eiga eftir að opna nýjar dyr fyrir flugfélagið
sem stefnir á að auka umsvif sín í millilandaflugi.
Fyrsta flugið með Airbus A330-200 þotunni verður flogið þann 1. ágúst frá Kathmandu til Dubai.
Kaupin eru hluti af endurnýjun flota Nepal Airlines en stefna félagsins er að vera alfarið með þotur frá Airbus en félagið hefur í dag blandaðan flota af vélum frá Airbus, Boeing, de Havilland auk minni flugvéla sem framleiddar voru í Kína.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.