flugfréttir
GOL fær sína fyrstu MAX-þotu
Fyrsta Boeing 737 MAX þotan fyrir GOL (Gol Linhas Aéreas)
Gol Linhas Aéreas (GOL) hefur fengið sína fyrstu Boeing 737 MAX þotu afhenta en flugfélagið brasilíska á von á 120 eintökum af Boeing 737 MAX 8.
Til stendur að GOL fái fimm Boeing 737 MAX þotur á þessu ári, átta þotur árið 2019, aðrar átta árið 2020, þrettán
árið 2021 og níu árið 2022.
Flugfélagið ætlar að nota nýju þoturnar í flugi frá Brasilíu til áfangastaða í Suður-Ameríku, í Karíbahafinu
auk þess sem þær verðar notaðar í flugi til suðurausturhluta Bandaríkjanna en GOL ætlar að hefja
aftur flug þangað með áætlunarflugi til Miami og Orlando.
GOL er fyrsta flugfélagið í Brasilíu til að fá 737 MAX en félagið hefur einnig
gert samning við flugvélaleiguna GECAS um leigu á átta Boeing 737 MAX þotum til viðbótar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.