flugfréttir
Met slegið á Flightradar24.com
- Yfir 200.000 flugvélar á flugi um allan heim á einum degi
Skjáskot af Flightradar24.com af flugumferðinni þann 29. júní sl.
Aldrei áður hafa eins margar flugvélar verið á flugi í heiminum á einum degi á Flightradar24.com eins sl. föstudag þegar met var slegið í talningu.
Þann 29. júní sl. voru 202.157 flugvélar á Flightradar24 og var það í fyrsta skipti sem fjöldi flugvéla
fer yfir 200.000 á einum degi.
Flugvélarnar, sem voru í loftinu þann daginn, hafa þó verið mun fleiri þar sem ekki allar flugvélar koma með þeim sendibúnaði sem til þarf til að koma fram á síðunni og er mikill fjöldi minni flugvéla sem koma ekki fram á síðunni.
„Þetta var annasamasti dagur ársins í háloftunum og sá stærsti frá upphafi“, segir í Twitter-færslu frá
fyrirtækinu sænska sem rekur Flightradar24.com.
Þegar mest var þá voru 19.285 flugvélar á radarnum á föstudag á sama augnarbliki um allan heim
og má sjá á meðfylgjandi skjáskoti að aðeins mátti aðeins sjá glytta
í jörðina í Rússlandi, Grænlandi, nyrst í Kanada, í Tíbet, Skandinavíu, Ástralíu og á nokkrum stöðum í Afríku
og þá mátti sjá eina flugvél fljúga yfir Líbýu.
Þegar mest var þá voru yfir 19 þúsund flugvélar á sama augnarblikinu á flugi heimshorna á milli
Flugumferðinn í heiminum þann 29. júní sl. var tvisvar sinnum meiri en rólegasti dagur
ársins 2017 sem var Jóladagur en þrátt fyrir það þá voru 101.511 flugvélar í háloftunum þann daginn.
Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðasamtökum flugfélaganna (IATA) þá eru um 4 milljarðar
farþega sem fljúga með áætlunarflugi árlega en gert er ráð fyrir að sú tala eigi eftir að tvöfaldast
næstu 20 árin.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.