flugfréttir

Elsta Airbus A320 þota heims brást danska landsliðinu

- Flugrekandinn fékk ekki leyfi og komst liðið heim með Boeing 737-500 þotu

2. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:08

Knattspyrnusamband Danmerkur (DBU) hafði tekið JY-JAC á leigu frá Jordan Aviation en félagið fékk ekki leyfi til þess að fljúga frá Nizny Novgorod til Kaupmannahafnar

Danska fótboltalandsliðið komst ekki heim til sín með þeirri flugvél sem til stóð að myndi fljúga liðinu aftur heim í gær eftir tapleik þeirra gegn Króötum í sextán liða úrslitunum á Heimsmeistarakeppninni í fótbolta í Rússlandi.

Knattspyrnusamband Danmerkur (DBU) hafði tekið á leigu elstu Airbus A320 þotu í heimi sem var ein af þeim fimmtíu fyrstu þotum sem framleiddar voru á níunda áratug síðustu aldar.

Vélin var tekin á leigu frá Jordan Aviation í Jórdaníu og ber hún skráninguna JY-JAC en sú þota var upphaflega afhent til Ansett Airlines í Ástralíu þann 21. apríl árið 1989.

Ekkert varð að fluginu þar sem í ljós kom að Jordan Aviation hafði ekki tilskilin leyfi til þess að fljúga frá Nizny Novgorod til Kaupmannahafnar en fengin var Boeing 737-500 þota frá Klas Jet í Litháen sem flaug leikmönnum liðsins, fjölskyldum þeirra og stuðningsmönnum heim frá Nizny Novgorod í morgun.

JY-JAC er elsta Airbus A320 þotan sem er enn í notkun í dag

Jakob Høyer, fjölmiðlafulltrúi DBU segir í viðtali við fjölmiðilinn check-in að verið sé að vinna í málinu en gera má ráð fyrir að Jordan Aviation eigi eftir að fá skaðabótakröfu frá danska knattspyrnusambandinu.

Í dag, 29 árum síðar, er JY-JAC enn í umferð en hún hefur komið víða við þar sem hún hefur verið í flota Greece Airways, Pacific Airlines og Balkan Holidays Air auk þess sem hún hefur flogið fyrir flugfélög í Víetnam og Sýrlandi.

Sama flugvélin (VH-HYG) í litum Ansett Australia á flugvellinum í Melbourne árið 1989

VH-HYG var tuttuguasta og níunda Airbus A320 þotan sem smíðuð var og er hún því sú elsta sem er enn í notkun í heiminum í dag og ein af þeim fyrstu fimmtíu sem framleiddar voru.

Tvær af þessum fimmtíu hafa lent í flugslysi, ein er á safni, fimm hafa verið færðar í geymslu og 42 hafa verið sendar í niðurrif.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga