flugfréttir

Dróni flaug 10 fetum framhjá Airbus A320 í 7.000 fetum

- Flokkað sem mjög alvarlegt atvik

2. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:08

Flugvélin var komin í 7.000 feta hæð eftir flugtak frá Luton-flugvellinum þegar dróni fór framhjá (Myndin er samsett)

Mjög litlu munaði að dróni hefði rekist á farþegaþotu af gerðinni Airbus A320 sem var í flugtaksklifri frá Luton-flugvellinum á Englandi í vor.

Flugmálayfirvöld í Bretlandi flokka atvikið sem „Category A“ sem þýðir að um mjög alvarlegt atvik hafi verið að ræða en að sögn annars flugmannsins þá voru aðeins 10 til 20 fet sem skildu að drónann og rúðu flugstjórnarklefans.

Fram kemur að atvikið átti sér stað þann 6. maí í vor og var þotan komin í 7.000 feta hæð en ekki kemur fram hvaða flugfélag átti í hlut.

Flugmennirnir höfðu engann tíma til þess að bregðast við þar sem dróninn birtist mjög snögglega en hann var bæði í margfalt hærri hæð en leyfilegt er og einnig alltof nálægt flugvellinum.

Talið er að þreföldun hafi orðið á tilvikum þar sem drónum er flogið með ólögmætum hætti og það í veg fyrir flugvélar í Bretlandi en hingað til hefur farið betur en á horfðist.

Árið 2017 voru 92 drónatilvik skráð í Bretlandi samanborið við aðeins 29 tilvik árið 2015 en erfiðlega hefur gengið að hafa hendur í hári drónaflugmanna þar sem þeir eru oftast á bak og burt.

Flugmenn hafa varað við því að dróni getur auðveldlega valdið skemmdum á farþegaþotu ef hann fer utan í rúðu flugstjórnarklefans eða inn í hreyfil.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga