flugfréttir
Fastjet fær aukið fé
Embraer-þota Fastjet á flugvellinum í Jóhannesarborg
Fjárfestum hefur tekist að safna saman 1 milljarði króna til að setja í rekstur Fastjet en varað var við því í seinustu viku að starfsemi félagsins myndi stöðvast á næstu dögum ef ekki yrði sett meira fjármagn í reksturinn.
Þá hefur fyrirtækið Solenta Aviation í Suður-Afríku keypt aukinn hlut í félaginu og mun framkvæmdarstjóri þess félags
verða meðlimur í stjórn Fastjet og sjá um rekstur félagsins í Mozambique og í Zimbabwe.
Gert er ráð fyrir að fjárfestar muni koma mjög fljótlega með enn meira fé í rekstur Fastjet fyrir restina
af árinu.
Félagið segir að öðru leyti hafi reksturinn verið stöðugur árið 2017 á sama tíma og félagið færði sig úr því
að vera með Airbus A319 þotur yfir í Embraer-þotur en þá ætlar Fastjet einnig að taka í notkun fleiri ATR 72 skrúfuþotur
í september.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.