flugfréttir
Sukhoi fraktþota í undirbúningi
Frá lokasamsetningasalnum þar sem Sukhoi Superjet 100 þoturnar eru smíðaðar
Rússneski flugvélaframleiðandinn Sukhoi vinnur nú að því að koma með fraktútgáfu af Sukhoi Superjet 100 þotunni sem til stendur að smíða.
Í seinustu ársskýrslu hjá Sukhoi kom fram að fraktútgáfa af SSJ100 þotunni væri á forgangslista
er kemur að þróun og framleiðslu á fleiri útgáfum af þotunni.
Ekki hafa verið birtar neinar frekari upplýsingar um fraktþotuna en Sukhoi stefnir einnig á að smíða
minni útgáfu af Sukhoi Superjet 100 sem tæki þá 76 til 88 farþega og gæti flogið lengri vegalengdir.
Einkaþota, sem byggir á SSJ100, er einnig á teikniborðinu en sú þota mun nefnast Sukhoi Business Jet
sem á að koma með flugdrægi upp á 7.000 kílómetra með viðbótareldsneytistönkum.
Alls voru 34 Sukhoi Superjet 100 þotur framleiddar árið 2017 og stóð til að afhenda 30 á þessu ári
en ekki hefur tekist að afhenda allar þær þotur sem til stóð.
Flestar SSJ þoturnar hafa verið seldar til rússneskra flugfélaga auk flugfélaga í fyrrum ríkjum Sovíetríkjanna
en þá hafa pantanir einnig borist frá flugfélögum í suðausturhluta Asíu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.