flugfréttir
Nýtt félag stofnað um rekstur Flugskóla Íslands
- Verður ekki lengur í eigu Tækniskólans
TF-IFA, ein af Tecnam P2002 kennsluvélum Flugskóla Íslands
Gengið hefur verið frá samkomulagi við fyrrum eigendur Flugskóla Íslands og aðila þeim tengdum, um yfirtöku á rekstri Flugskólans. Í framhaldinu verður skólinn starfræktur í nýju félagi, Flugskóla Íslands ehf.
Flugskóli Íslands ehf. verður áfram með starfsstöðvar í húsnæði Tækniskólans í Hafnarfirði og á Háteigsvegi. Eftir sem áður verða góð tengsl og samvinna á milli Tækniskólans og Flugskólans og náttúrufræðibraut-flugtækni verður að sjálfsögðu áfram í boði í Tækniskólanum.
Samhliða þessu var ákveðið að flugvirkjanám, sem Tækniskólinn hefur rekið í samvinnu við Flugskólann, verði áfram hjá Tækniskólanum sem hluti Véltækniskólans, eins af undirskólum Tækniskólans.
Bóklegt flugnám verður áfram í húsnæði Tækniskólans í Hafnarfirði
Nám til atvinnuflugs og flugvirkjunar er um margt ólíkt t.d. hvað snertir námsskrár, skipulag náms og alþjóðlegt eftirlit og því til viðbótar er flugnám undir Samgönguráðuneytinu en nám til flugvirkjunar er iðnnám sem fellur undir Mennta- og menningarmálaráðuneytið.
Fjöltækniskóli Íslands eignaðist Flugskóla Íslands árið 2005 og varð skólinn því hluti af Tækniskólanum 2008 þegar Tækniskólinn varð til í núverandi mynd.Flugskólinn var árið 2016 sameinaður Tækniskólanum en hafði áður verið rekinn undir nafni Flugskóla Íslands á eigin kennitölu.
Það er von beggja aðila að með þessum breytingum verði flugnám og flugvirkjanám best fyrirkomið til næstu framtíðar. Stefnt er að áframhaldandi góðri samvinnu Tækniskólans og Flugskóla Íslands.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.