flugfréttir
Airbus náði ekki samningi við AirAsia um fleiri þotur
- Tony Fernandes fór tómhentur heim
Tony Fernandes, framkvæmdarstjóri AirAsia
Airbus tókst ekki að selja AirAsia fleiri Airbus A330neo þotur eftir heimsókn Tony Fernandes, framkvæmdarstjóra félagsins, til höfuðstöðva Airbus í Toulouse.
Fernandes átti í ströngum viðræðum við Airbus um eiginleika A330neo og kaupverðið en fór tómhentur heim
að loknum fundi.
Þetta gæti gefið Boeing forskot á að selja AirAsia Dreamliner-þotuna þar sem Fernandes hefur áður gefið í skyn
að Boeing 787 kæmi jafnvel til greina ef samningar um Airbus A330neo ná ekki fram að ganga.
Airbus á í harðri samkeppni við Boeing þar sem framleiðandinn hefur fengið pantanir í 224 eintök af Airbus A330neo
en á sama tíma eru komnar pantanir í yfir 1.370 Dreamliner-þotur.
„Eins og aðrir leiðandi flugvélaframleiðendur þá erum við í stöðugum viðræðum við viðskiptavini okkar um flotaþörf
þeirra og slíkar viðræður eru trúnaðarmál“, segir talsmaður Airbus sem vill ekki frekar tjá sig um hvers vegna
ekki náðust samingur við Tony Fernandes.
Fernandes gefur í skyn á Twitter að það séu farnar að renna á hann tvær grímur varðandi Airbus A330neo
og kemur þar við sögu kaupverð, eiginleikar, hreyflar auk annarra þátta sem spilast inn í.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.