flugfréttir

Telja að yfirtaka Boeing það besta sem gat hent Embraer

7. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:44

Frá verksmiðjum Embraer í Brasilíu

Velgengni brasilíska flugvélaframleiðandans Embraer á eftir að aukast með yfirtöku Boeing að mati flugsérfræðinga sem hafa rýnt ofan í afleiðingar yfirtökunnar sem tilkynnt var um í vikunni.

Embraer var stofnað árið 1969 af brasilíska flughernum en litlu munaði að fyrirtækið hefði farið á hausinn er það var í eigu ríkisstjórnarinnar og því næst tóku við erfiðir tímar er Embraer var einkavætt.

Embraer náði að stilla sér fram í röð ásamt stærstu flugvélaframleiðendum heims upp úr aldarmótunum er fyrstu E-þoturnar komu á markaðinn sem slóu strax í gegn meðal flugfélaga sem þurftu minni þotur til að þjóna flugleiðum milli minni borga.

Framleiðsla á Embraer-þotunum hófst árið 2001

Farþegaþotuframleiðslan mun á næstunni sameinast framleiðsludeild Boeing en að mati flugfréttamiðilsins Flightglobal er um að ræða það besta sem gæti komið fyrir Embraer þar sem tímarnir hafa breyst töluvert á sl. 20 árum og án aðkomu Boeing myndi erfiðara umhverfi blasa við á markaðnum.

Boeing bauð Embraer 506 milljarða króna fyrir 80 prósenta hlut í farþegaþotudeildinni en Embraer mun áfram vera með stjórnartaumana og stýra framleiðslu á nýjum Embraer-þotum og sjá um framleiðslu.

Á móti mun Embraer fá beinan aðgang að öflugri söludeild Boeing og markaðssamskiptum og þjónustudeild sem mun sjá um allt er viðkemur að markaðsetningu og sölu á Embraer-þotunum.

Þá mun Embraer fá aukið fé eftir kaupin til að efla framleiðslu á einkaþotum en Embraer mun halda þeirri deild áfram af fyrir sig þar sem yfirtaka Boeing nær ekki yfir þá einkaþotuframleiðsluna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga