flugfréttir
Airbus: Kjörið að skipta út eldri Boeing 767 þotum fyrir A330neo
- Sveigjanlegir eiginleikar A330neo kostur fyrir bandarísk flugfélög
Airbus A330-900 tilraunarþota Airbus
Airbus reynir nú að vinna pantanir frá þeim bandarískum flugfélögum sem hafa eldri Boeing 767 breiðþotur í flotanum en Airbus vill meina að A330neo breiðþotan nýja sé mun hentugri kostur fyrir flugfélög í stað þess að velja Dreamliner-þotuna.
Airbus segir að eiginleikar Airbus A330neo þotunnar séu það sveigjanlegir að hún geti án efa leyst af hólmi
eldri Boeing 767 breiðþotur þar sem flugdrægi og flugtaksþungi þeirra sé mjög sveigjanlegur.
Peter Finn, verkefnastjóri yfir Airbus A330 framleiðslunni, segir að flugfélög geti sniðið A330neo að sínum
þörfum með lægri eða hærri flugtaksþunga eða pantað útgáfu með minna flugdrægi sem lækkar rekstrarkostnað.
„Ef þú sameinar lægri flugtaksþyngd á móti afli þá er hægt að lækka rekstarkostnað um allt að 5%“, segir Finn.
Minni Airbus A330neo þotan, A330-800, tekur 257 farþega í hefðbundnu, þriggja sæta farrými og getur flogið allt
að 8.150 nm á meðan Airbus A330-900 getur flogið 7.200 nm með 287 farþega.
Airbus segir að þessi sveigjanleiki verði „leynivopnið“ til að vinna pantanir frá Delta Air Lines og United Airlines
sem hafa eldri Boeing 767 breiðþotur í flota sínum sem þarf að fara skipta út fyrir nýrri vélar.
Airbus A330neo samt of stór og aflmikil fyrir Delta
Delta Air Lines hefur nú þegar pantað nýjar A330neo og A350 frá Airbus en United hefur ekki ákveðið hvaða flugvélategund
þeir ætla að panta til að skipta út fyrir fimmtíu Boeing 767 breiðþotur.
Airbus A330neo þota TAP Portugal á Keflavíkurflugvelli í byrjun júlí / Ljósmynd: Skúli Björgvin Sigurðsson
Ed Bastian, framkvæmdarstjóri Delta Air Lines, segir að félagið leiti að flugvél sem geti komið í stað Boeing 757-300
og Boeing 767 en hún verði að vera frekar nett og ekki of öflug.
„Stundum þá hefur flugvél of mikla eiginleika og of lang flugþol og verður því dýr í rekstri. Þetta fer allt eftir
á hvaða flugleið vélin er notið“, segir Bastian.
Báðar útgáfurnar af Airbus A330neo eru stærri og geta flogið lengra en Boeing 767 þotur Delta og Boeing 757-300
en þrátt fyrir það þá er Delta Air Lines eina bandaríska flugfélagið sem hefur pantað Airbus A330neo.
United ekki eins spennt fyrir Boeing 797
United Airlines segir að verið sé að leita að réttu flugvélinni sem gæti komið í staðinn fyrir 127 flugvélar í flotanum
af gerðinni Boeing 767 og Boeing 757 og sé félagið að skoða nýja þotu frá Boeing sem er á teikniborðinu
sem er Boeing 797.
Delta Air Lines hefur hinsvegar sýnt Boeing 797 það mikinn áhuga að félagið hefur unnið að þróun vélarinnar
undanfarna mánuði í samstarfi við Boeing og vill verða fyrsta flugfélagið til að fá þá þotu afhenta en það yrði þó
ekki fyrr en í fyrsta lagi árið 2025.
United Airlines hefur rætt við Boeing varðandi nýju þotuna en hafa ekki sýnt vélinni það mikinn áhuga og ekki
gengið eins langt og Delta.
Airbus tapaði stórri pöntun á sínum tíma þegar American Airlines ákvað að panta 47 eintök af Boeing 787 til að leysa
af hólmi eldri Airbus A330 breiðþotur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.