flugfréttir

Samband rofnaði við þotu frá British Airways

9. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 10:35

Airbus A320 þota British Airways

Samband rofnaði við farþegaþotu frá British Airways um stundasakir fyrir helgi þegar vélin var á leið frá London Heathrow til Palermo á Sikiley.

Þotan, sem er af gerðinni Airbus A320, var að yfirgefa lofthelgina REIMS FIR í Frakklandi og voru flugmenn vélarinnar beðnir um að hafa samband við svissneska lofthelgi en ekkert heyrðist frá flugmönnunum þegar flugumferðarstjórar í Sviss bjuggust við að að heyra frá þeim.

Eftir nokkrar tilraunir til að ná til flugvélarinnar ákváðu flugumferðarstjórarnir í Sviss að gera flughernum viðvart til að undirbúa að ræsa út orrustuþotu til að fljúga til móts við vélina.

Eftir nokkrar tilraunir til viðbótar kom svar frá flugvélinni og sögðu flugmennirnir að þeir vissu hreinlega ekki hvað kom fyrir og hvers vegna þeir náðu ekki að tilkynna sig á svissnesku tíðninni.

Flugmennirnir sögðu að þeir hefðu stillt inn á nýju tíðnina en náðu engu sambandi og er þeir prófuðu að stilla aftur yfir á frönsku lofthelgina náðu þeir heldur ekki neinu sambandi. Flugvélin hélt fluginu áfram og lenti í Palermo þremur klukkustundum síðar.

Hlustandi, sem var með stillt á svissnesku tíðnina, segir að flugumferðarstjórarnir hafi fjórum sinnum lýst því yfir að ræstar verði út Hornets-orrustuþotur sem myndu koma til móts við flugvélina.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga