flugfréttir
JetBlue pantar allt að 120 eintök af Airbus A220 (CS300)
- Mikill skellur fyrir Embraer
Tölvugerð mynd af Airbus A220 (CS300) í litum JetBlue
JetBlue hefur lagt inn pöntun til Airbus í allt að 120 eintök af Airbus A220-300 þotunni sem er nýtt nafn á CSeries CS300 þotunni frá Bombardier.
Tilkynnt var um kaupin aðeins nokkrum klukkutímum eftir að CS300 þotan fékk nýtt nafn í gær í kjölfar yfirtöku
Airbus á framleiðslunni á CSeries.
Pöntunin samanstendur af staðfestri pöntun í 60 þotur sem verða afhentar frá og með árinu 2020 en jetBlue hefur einnig tryggt sér kauprétt á 60 þotum til viðbótar frá og með árinu 2025.
Allar Airbus A220 þoturnar sextíu, sem jetBlue mun fá afhentar, verða framleiddar í nýrri verksmiðju í Mobile í Alabama
sem eiga eftir að rísa en framkvæmdir vegna þeirra munu hefjast innan tíðar.
Þoturnar sextíu ætlar jetBlue að nota m.a. til þess að leysa af hólmi eldri vélar af gerðinni Embraer E190 en þá hefur
félagið einnig ákveðið að uppfæra pöntun í 25 Airbus A320neo þotur upp í stærri útgáfuna, A321neo.
Airbus kynnti í gær A220 formlega til leiks
Val jetBlue, um að panta CS300 þotuna, er stór skellur fyrir Embraer sem hefur reynt að selja jetBlue nýju E2-kynslóðina
af Embraer-þotunni.
„Þrátt fyrir að Embraer E190 hefur þjónað lykilhlutverki í rekstri jetBlue frá árinu 2005 þá var niðurstaða okkar
sú að Airbus A220 er hagkvæmari kostur“, segir í yfirlýsingu frá félaginu.
Fram kemur að Airbus A220 (CS300) sé allt að 40% hagkvæmari í rekstri en þær Embraer E190 þotur sem jetBlue hefur
í dag en þær munu byrja að hverfa úr flotanum eftir tvö ár á sama tíma og félagið byrjar að taka við fyrstu A220 vélunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.