flugfréttir
Ryanair fær grænt ljós frá ESB vegna yfirtöku á Laudamotion
Airbus A320 þota Laudamotion á Tegel-flugvellinum í Berlín
Ryanair hefur fengið grænt ljós vegna kaupa á austurríska flugfélaginu Laudamotion og er það mat Evrópusambandsins að yfirtakan muni ekki hafa neikvæð áhrif á samkeppnina meðal flugfélaga í Evrópu.
Ryanair hafði áður tryggt sér 25% hlut í Laudamotion en hefur nú fengið leyfi til að eignast 75 prósenta hlut í félaginu.
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins segir að búið sé að fara fram rannsókn á þeim áhrifum sem
yfirtakan mun hafa á önnur flugfélög í Þýskalandi, Austurríki og í Sviss til áfangastaða í kringum Miðjarðarhaf og á
Kanaríeyjum og er talið að yfirtakan muni ekki valda neikvæðri samkeppni.
Þá var einnig rannsakað hvort að kaup Ryanair á lendingar- og afgreiðsluplássum frá Laudamotion á evrópskum flugvöllum
myndi hafa áhrif á samkeppni og var ekki talið að svo myndi vera.
Með yfirtökunni mun Ryanair styrkja stöðu sína til muna í farþegaflugi til og frá Austurríki og þá sérstaklega á flugvellinum
í Vín en félagið ætlar sér að vera komið með 50 flugvélar sem verða staðsettar í Vín innan fárra ára.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.