flugfréttir
Hálfur milljarður í endurnýjun flugbrautar á Gander-flugvelli
Frá flugvellinum í Gander á Nýfundnalandi
Stjórnvöld í Kanada ætla að verja tæpum hálfum milljarði króna í endurnýjun á yfirlagi á annarri flugbrautinni á Gander-flugvelli sem er lengsta flugbrautin í Nýfundnalandi og ein sú lengsta í Kanada.
Með endurnýjun á yfirlaginu verður flugbrautin sléttari og jafnari sem einnig auðveldar við snjómokstur yfir vetrartímann.
„Við höfum eina stærstu flugbraut í Kanada. Það getur flugvél af hvaða stærð sem er lent á brautinni. Allt frá lítilli
Cessnu og upp í stóra Airbus A380 risaþotu“, segir Scott Simms, þingmaður í Kanada.
Gander-flugvöllur var tekinn í notkun árið 1938 en í marga áratugi þjónaði hann mikilvægu hlutverki fyrir flugvélar
sem flugu yfir Atlantshafið sem höfðu þar viðkomu til að taka eldsneyti en eftir að þotuöldin tók við þá snarlega
dró úr flugumferð um völlinn.
Mikilvægi flugvallarins endurspeglaðist best þann 11. september árið 2001 en þá hlaut Gander-flugvöllur mikla athygli er 38 stórum farþegaflugvélum var lagt á flugbrautinni í kjölfar hryðjuverkaárásanna í Bandaríkjunum.
Á fjórða tug flugvéla var lagt á flugvellinum í Gander þann 11. september árið 2001
„Þetta er einnig mjög mikilvæg öryggishöfn og við verðum að vera öllu búnir til að taka við óvæntri flugumferð. Við getum
það ekki nema að flugvöllurinn sé í góðu ásigkomulagi“, segir Simms en reglulega þurfa flugvélar að lenda óvænt
í Gander á leið sinni yfir hafið.
„Það er nauðsynlegt að endurnýja yfirlag á flugbrautum á 12 til 15 ára fresti og í þessu tilviku er komin tími
á endurnýjun“, segir Reg Wright, framkvæmdarstjóri Gander-flugvallarins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.