flugfréttir
MRJ90 þotan kemur fram á Farnborough flugsýningunni
MRJ tilraunaþotan FTA-3 er í litum ANA (All Nippon Airways
Mitshubishi Aircraft segir að flugvélaframleiðandinn sé tilbúin til þess að fljúga nýju MRJ þotunni sitt fyrsta sýningarflug sem verður þá í annað sinn sem þotan kemur fram opinberlega.
Stefnt er á að tilraunarþotan FTA-3 muni koma fram í fyrsta sinn á Farnborough-flugsýningunni
sem hefst eftir helgi en þotan lagði af stað frá Moses Lake í Bandaríkjunum þann 9. júlí sl.
Þotan kom við í Bangor í Maine og á Keflavíkurflugvelli og lenti á Farnborough-flugvellinum
þann 10. júlí.
FTA-3 kemur í litun ANA (All Nippon Airways) sem verður fyrsta flugfélagið til að fá
MRJ90 þotuna afhenta.
Mitsubishi Aircraft hefur fengið pantanir í 288 eintök af Mitsubishi Regional Jet þotunni
en alls hafa 65 eintök verið pöntuð af MRJ70 og 223 eintök af MRJ90.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.