flugfréttir
Bíða með afhendingar á þotum til HNA Group vegna skulda
HNA Group á meðal annars Hainan Airlines
Airbus hefur ákveðið að bíða með afhendingar á að minnsta kosti sex síðustu Airbus A330 breiðþotunum sem afhenda átti til samsteypunnar HNA Group en þoturnar áttu að fara í flota kínversku flugfélaganna Hainan Airlines og Tianjin Airlines.
Ástæðan er sögð vera sú að fyrirtækið hefur ekki ekki greitt fyrir þoturnar og hefur
Airbus A330 þotunum sex verið komið fyrir á geymslusvæði á flugvellinum í Toulouse
við verksmiðjur Airbus.
HNG Group er móðurfélag Hainan Airlines, Tianjin Airlines og Hong Kong Airlines en öll
flugfélögin þrjú hafa margar þotur frá Airbus.
HNA Group hefur átt í fjárhagserfiðleikum að undanförnu þar sem fyrirtækið hefur varið
miklum fjármunum í auknum umsvifum og þar á meðal með stórum pöntunum í nýjar
þotur.
Tianjin Airlines, Hainan Airlines og Hong Kong Airlines eiga öll von á yfir 70 nýjum þotum
frá Boeing, Airbus og Embraer en HNA Group hefur varið yfir 5 þúsund milljörðum króna
á síðustu mánuðum í flugiðnaðinn auk kaupa á eignum víða um heim.
Þá á HNA Group einnig hlut í flugfélögum á borð við Azul Linhas Aéreas Brasileiras, TAP Air Portugal, Virgin
Australia og Comair auk þess að eiga hlut í Frankfurt Hahn flugvellinum í Þýskalandi.
Wall Street Journal greindi frá því í nóvember í fyrra að skuldir HNA Group
væru yfir 10 þúsund milljarðar króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.