flugfréttir
Farnborough-flugsýningin hefst formlega
- Pöntunum byrjar að rigna inn til Boeing, Airbus og Embraer
Farnborough-flugsýningin hófst formlega í morgun
Flugsýningin Farnborough Airshow hófst formlega í Bretlandi í morgun og hafa margar pantanir verið gerðar á fyrstu klukkutímum flugsýningarinnar.
Boeing hefur meðal annars fengið pöntun frá vöruflutningarisanum DHL í fjórtán Boeing 777F fraktþotur og
er sú pöntun metin á 500 milljarða króna og þá hefur verið tilkynnt að United Airines hafi pantað fjórar
Boeing 787-9 þotur.
United Airlines hefur einnig lagt inn pöntun til Embraer í tuttugu og fimm þotur af gerðinni Embraer E175
að andvirði 117 milljarða króna en þær vélar munu fara í flota United Express.
Þá hefur Qatar Airways einnig staðfest pöntun í fimm Boeing 777F fraktþotur að andvirði 181 milljarðs króna
en félagið gerði samkomulag um pöntunina í apríl í vor.
Airbus hefur fengið pöntun frá írsku flugvélaleigunni Goshawk Aviation í tuttugu Airbus A320neo þotur
en fyrirtækið hefur um 220 þotur í flotanum sem leigðar eru út til flugfélaga um allan heim.
Frá sýningasvæðinu í morgun
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.