flugfréttir
Flugmaður með veipu í stjórnklefa olli neyðarlækkun
- Þrýstingur um borð féll niður er hann slökkti á loftræstikerfi til að fela reykinn
Þotan var á leið frá Hong Kong til borgarinnar Dalian á meginlandi Kína þann 10. júlí síðastliðinn þegar atvikið átti sér stað
Tveir flugmenn hjá kínverska flugfélaginu Air China hafa verið kallaðir inn á teppið vegna atviks sem átti sér stað í seinustu viku er farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 missti hæð sem samsvarar um 25.000 fetum í neyðarlækkun sem rakið er til notkun rafsígarettu meðal annars flugmannsins.
Vélin var í innanlandsflugi í Kína frá Hong Kong til borgarinnar Dalian og var vélin í 35.000 fetum
þegar vélin lækkaði flugið skyndilega vegna vandamáls með jafnþrýstings um borð.
Fram kemur að aðstoðarflugmaðurinn hafi verið að stelast til þess að veipa og er talið að flugmennirnir
hafi óvart slökkt á afhleypiloftskerfi (bleed air) sem varð til þess að þrýstingur um borð féll niður.
Flugmennirnir náðu ekki að koma jafnþrýstingi aftur á í farþegarýminu og lækkuðu þeir flugið niður í 10.000 fet
en hækkuðu flugið fljótlega aftur upp í 26.000 fet og héldu fluginu áfram til Dalian.
Boeing 737-800 farþegaþota Air China
Við lækkunina féllu súrefnisgrímur niður í farþegarýminu og tóku margir farþegar myndir af því og settu
á kínverska samfélagsmiðilinn Weibo.
Báðum flugmönnunum vikið frá störfum
Báðum flugmönnunum hefur verið meinað að fljúga á meðan atvikið er rannsakað en í tilkynningu
frá Air China kemur fram að félagið sýni enga miskunn sé það raunin að flugmennirnir hafi verið að veipa
í stjórnklefanum.
Air China hefur sent kínverskum flugmálayfirvöldum beiðni um að afturkalla atvinnuflugmannsskírteini
flugmannanna að lokinni rannsókn.
Kínversk flugmálayfirvöld hafa gefið frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að grunur leikur á að
aðstoðarflugmaðurinn hafi verið að brúka rafmagnssígarettu í stjórnklefanum.
Til að koma í veg fyrir að gufan myndi
berast inn í farþegarýmið hafi hann ákveðið að slökkva á loftræstingunni en óvart tekið af afheypiloftskerfið
sem varð til þess að viðvörun kom upp um að þrýstingur í farþegarými hefði fallið niður.
Það var ekki fyrr en að flugmennirnir voru búnir að lækka flugið að þeir komust að því að þeir hefðu
óvart slökkt á afhleypiloftskerfinu.
Kínversk flugmálayfirvöld munu fara bæði yfir gögn út flugrita og hljóðrita til að hlusta á samtöl
flugmannanna við rannsókn málsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.