flugfréttir
Farnborough: Tvær Airbus A220 þotur til sýnis
Airbus A220 þoturnar tvær á sýningunni í litum Airbus og airBaltic
Tvær Airbus A220-300 þotur eru nú til sýnis á Farnborough-flugsýningunni en airBaltic er með eina af A220 þotunni á svæðinu sem einnig er þekkt undir nafninu CSeries CS300.
Fyrsta CSeries-þotan í litum Airbus og með nýja nafninu „Airbus A220“ er einnig á sýningunni
en Airbus gekk frá kaupum á CSeries-framleiðslunni frá Bombardier þann 1. júlí sl.
AirBaltic á von á fimmtíu þotum af gerðinni Airbus A220 en félagið hefur fengið níu afhentar í dag
frá Bombardier og hafa í dag yfir 1.3 milljón farþega flogið með þotunum hjá félaginu.
Airbus hefur ekki fengið pöntun í Airbus A220 á fyrsta degi Farnborough-flugsýningarinnar en þann 11. júlí lagði jetBlue inn pöntun í 120 Airbus A220 þotur sem er stærsta pöntunin í þessa flugvélategund.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.