flugfréttir
Kvenmenn í Sádí-Arabíu geta núna sótt um flugnám
- Fyrsti flugskólinn í landinu til þess að taka við umsóknum frá konum
Dalia Yashar var meðal þeirra fyrstu til þess að skrá sig í flugnám hjá Oxford Aviation Academy
Flugskóli einn í Sádí-Arabíu ætlar að verða sá fyrsti þar í landi til þess að leyfa kvenmönnum að hefja flugnám.
Breski flugskólinn Oxford Aviation Academy hefur opnað nýtt útibú í Sádí-Arabíu og mun hann taka við umsóknum
frá konum sem stefna á að verða atvinnuflugmenn.
Sú ákvörðun var tekin þar sem stjórnvöld í landinu hafa létt á reglugerðum sem hafa hingað til bannað konum
ýmsar daglegar athafnir á borð við að aka bifreiðum.
Oxford Aviation Academy opnaði nýlega flugskóla í borginni Dammam og hefur skólinn nú þegar fengið
umsóknir frá hundruðum kvenna sem stefna á flugnám en áður fyrr hafa þær þurft að ferðast erlendis til að
komast í flugnám þar sem það hefur aðeins verið í boði fyrir karlmenn í Sádí-Arabíu.
Fyrsti atvinnuflugmannsbekkurinn, þar sem kvenmenn verða meðal nemenda, fer af stað í september
„Sá tími er liðinn þar sem sem konur hafa aðeins fengið að vinna í takmörkuðum störfum“, segir Dalia Yashar,
sem var meðal þeirra fyrstu til þess að skrá sig í flugnám.
Oxford Aviation Academy flugskólinn í Sádí-Arabíu er staðsettur á King Fahd International flugvellinum en einnig verður boðið
upp á nám í flugvirkjum við skólann.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.