flugfréttir
Farnborough: Embraer kominn með sjö pantanir
Embraer E2 þotan
Embraer hefur fengið sjö pantanir í nýjar farþegaþotur á Farnborough-flugsýningunni sem hófst í gær.
Fyrst ber að nefna pöntun frá Mauritania Airlines sem hefur staðfest pöntun í fimm Embraer E175 þotur
og þá hefur Wataniya Airways í Kúvæt pantað tíu Embraer E195 þotur með möguleika á tíu þotum til viðbótar.
Ónefnt flugfélag á Spáni hefur lagt inn pöntun í þrjár Embaer E195 E2 þotur og þá hefur Republic Airlines
staðfest pöntun í 100 þotur af gerðinni Emrbaer E175.
Nordic Aviation Capital hefur pantað þrjár Embraer E190 þotur og Azul Linhas Aéreas Brasileiras hefur
gert samkomulag um 21 þotu af gerðinni Embraer E195 E2.
Að lokum hefur Helvetic Airways gert samkomulag um tólf Embraer E190 E2 þotur með möguleika á að panta
tólf til viðbótar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.