flugfréttir
Farnborough: Airbus komið með pantanir í 356 þotur
Airbus A330neo þotan á Farnborough flugsýningunni
Þrettán viðskiptavinir, flugfélög og flugrekstraraðilar hafa lagt inn pantanir til Airbus í nýjar þotur á Farnborough flugsýningunni.
Alls er búið að panta eða gera samkomulag um kaup á 356 þotum en flestir viðskiptavinirnir
eru að panta þotur úr Airbus A320neo fjölskyldunni.
Meðal viðskiptavina sem hafa lagt inn pantanir til Airbus eru Golden Falcon Aviation, Goshawk, Macquaire
AirFinance, Vistara, Sichuan Airlines, Starlux Airlines, Peach Aviation, SalamAir og fleiri en margir viðskiptavinir
hafa einnig óskað eftir nafnleynd og er því um ónefndan viðskiptavin að ræða.
Flestar pantanirnar til Airbus komu á sunnudag og á mánudag en engar nýjar pantanir hafa borist í gær og í dag.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.