flugfréttir
Airbus aftur komið með pöntun í Airbus A330-800
- Uganda Airlines pantar tvær tegundir af minni Airbus A330neo þotunni
Eric Schulz, sölustjóri Airbus (til vinstri) og Ephraim Bagenda, framkvæmdarstjóri Uganda Airlines
Airbus hefur fengið nýja pöntun í Airbus A330-800 þotuna sem er minni útgáfuna af Airbus A330neo.
Þar af leiðandi er nú aftur komin pöntun í minni tegundina en hingað til var enginn viðskiptavinur sem átti
pantaða Airbus A330-800 eftir að síðasti viðskiptavinurinn dró pöntun sína til baka sem var Hawaiian Airlines.
Viðskiptavinurinn að þessu sinni er ríkisflugfélag Úganda, Uganda Airlines, sem hefur gert samkomulag um
að kaupa tvær Airbus A330-800 þotur.
Þá hefur Uganda Airlines einnig lagt inn pöntun í fjórar CRJ900 þotur frá Bombardier.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.