flugfréttir
BA tekur þrjár 777-300ER þotur á leigu til viðbótar
Boeing 777-300ER þota British Airways
British Airways ætlar að taka þrjár Boeing 777-300ER þotur á leigu á næstunni.
Tilkynnt var um þetta á Farnborough-flugsýningunni í dag en ekki kemur fram hvaða flugvélaleiga ætlar að
verða flugfélaginu breska út um þoturnar.
British Airways hefur í dag fengið tólf Boeing 777-300ER þotur afhentar sem hafa leyst af hólmi
minni tegundina, Boeing 777-200, og eru aðeins þrjár slíkar eftir í flotanum en félagið hefur einnig
43 þotur af gerðinni Boeing 777-200ER.
Flugvélaleigan mun afhenda fyrstu Boeing 777-300ER þotuna til British Airways árið 2020.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.