flugfréttir
Hi Fly leigir út fyrstu A380
- Finna fyrir miklum áhuga fyrir leigu á risaþotunni
Airbus A380 þota Hi Fly í sérstökum kórallitum á Farnborough-flugsýningunni
Portúgalska flugvélaleigan Hi Fly hefur tilkynnt að fyrirtækið hafi leigt út fyrstu Airbus A380 risaþotuna.
Hi Fly tók við tveimur af þeim Airbus A380 risaþotum sem Singapore Airlines skilaði í fyrra til eigandans sem
er þýska fyrirtækið Doric Lease.
Hi Fly segir að búið sé að leigja fyrstu A380 þotuna út og sé leigutakinn evrópskur flugrekandi en ekki
kemur fram hver viðskiptavinurinn er.
Um svokallaða blautleigu er að ræða og er risaþotan því leigð út með áhöfnum og verður þotan notuð
í langflugi í sumar.
Hi Fly segir að fyrirtækið finni fyrir miklum áhuga frá viðskiptavinum sem hafa áhuga á að leigja Airbus A380
risaþotuna og sé von á að fleiri samningar verði undirritaðir á næstunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.