flugfréttir
Þota Malaysian fór í loftið með hlífar á stemmurörum
- Lýstu yfir neyðarástandi eftir flugtak vegna óáreiðanlegs flughraða
Þotan Malaysia Airlines var nýfarin í loftið frá Brisbane í Ástralíu á leið til Kuala Lumpur þegar flugmennirnir lýst yfir neyðarástandi (PAN PAN PAN)
Farþegaþota frá Malaysia Airlines þurfti í síðustu viku að snúa við skömmu eftir flugtak í Ástralíu eftir að í ljós kom að mælar sýndu óáreiðanlegar upplýsingar um flughraða þar sem gleymst hafði að fjarlægja hlífar af stemmurörum.
Þotan, sem er af gerðinni Airbus A330, fór í loftið frá flugvellinum í Brisbane sl. miðvikudag áleiðis til Kuala
Lumpur en í flugtaksklifrinu lýstu flugmennirnir yfir neyðarástandi (PAN PAN PAN) þar sem stjórntæki og mælar
í stjórnklefanum sýndu misvísandi upplýsingar um flughraða.
Flugmennirnir hættu við frekara klifur og fóru yfir gátlista til að komast að orsök vandans auk þess
sem vélin þurfti að losa sig við eldsneyti fyrir lendingu en þotan lenti aftur í Brisbane tæpri klukkustund síðar.
Fram kemur að eftir lendingu hafi komið í ljós við nánari skoðun að gleymst hafði að fjarlægja hlífar af þremur
stemmurörum („pitot tubes“) fyrir brottför en
rörin skynja þrýsting loftsins við hraða vélarinnar í gegnum lofthjúpin sem gefur upp upplýsingar um flughraðann. Bilun
eða stífla í gatinu á stemmurörum geta haft alvarlegar afleiðingar og hafa valdið flugslysum.
Ljósmynd sem tekin var eftir að vélin snéri við sýnir hvar hlífarnar eru ennþá á tveimur stemmurörum og einu röri hægra megin
Þar sem flugmennirnir höfðu enga hugmynd um lendingarhraða vélarinnar er þeir snéu við til Brisbane
þá varð lendingin það hörð að skemmdir urðu á nefhjóli þotunnar og þurfti að draga hana af brautinni.
Ekki kemur fram með hvaða hætti það gleymdist að fjarlægja hlífarnar en stemmurörin er hluti af því sem flugmenn
athuga gaumgæfilega í fyrirflugsskoðun fyrir brottför.
Meðal annars er greint frá atvikinu á vefnum Avherald en þar eru nokkrir netverjar sem skrifa ummæli
við atvikið þar sem þeir furða sig á hvers vegna flugmennirnir gátu tekið á loft í fyrsta lagi með engar upplýsingar
um V-hraðana í flugtaksbruninu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.