flugfréttir

Vilja hefja aftur framleiðslu á Dornier 328

23. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:16

Alls voru um 211 eintök framleidd af Dornier 328 sem kom bæði sem skrúfuflugvél og þota

Svo gæti farið að Dornier 328 fari aftur í framleiðslu en framleiðsla á þessari flugvél leið undir lok árið 2000.

Dornier 328 kom á markaðinn árið 1993 og voru 217 eintök smíðuð af flugvélinni en 110 eintök voru smíðuð af skrúfuþotuútgáfunni og 111 þotur af þessari gerð.

Fyrirtækið 328 Support Services sér í dag um að þjónusta þann Dornier 328 flota sem er í umferð í heiminum en fyrirtækið tryggði sér framleiðsluréttinn á flugvélinni eftir að Fairchild-Dornier varð gjaldþrota árið 2002.

Þýska dagblaðið Weser Kurier greinir frá því að 328 Support Services hafi áhuga á því að opna verksmiðjur í þeim tilgangi að hefja aftur framleiðslu á vélinni og koma borgirnar Leipzig og Bremen til greina sem framleiðslustaðir en Dornier var á sínum tíma framleidd í þorpinu Oberpfaffenhofen, skammt frá Munchen.

Fyrirtækið 328 Support Services sér um allt sem viðkemur viðhaldi, þjónustu og kaupum á varahlutum fyrir Dornier 328 vélarnar í dag

328 Support Services hefur sent beiðni um upplýsingar og gögn sem varða framleiðsluna til birgja en Nico Neumann, framleiðslustjóri hjá fyrirtækinu, segir að í haust muni það koma betur í ljós hvort að Dornier 328 verði framleidd aftur.

Borgarstjórnin í Leipzig til í að útvega land fyrir framleiðsluna

Nú þegar er komin samkeppni um hvort Bremen eða Leipzig verður fyrir valinu en borgarstjórnin í Bremen hefur sent 328 Support Services tilboð í lansvæði fyrir verksmiðjurnar þar sem hægt væri að reisa þrjú, stór flugskýli fyrir framleiðsluna.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem 328 Support Services, sem er dótturfélag bandríska fyrirtækisins Sierra Nevada Corporation, hefur haft áform um að hefja aftur framleiðslu á Dornier 328 en árið 2015 gerði fyrirtækið samkomulag við stjórnvöld í Tyrklandi um smíði á nýrri flugvél sem átti að verða tyrknesk „regional“ flugvél byggð á Dornier 328 en hætt var við þau áform árið 2017.

Dornier 328 tekur allt að 34 farþegar en árið 2013 voru um 166 eintök af vélinni enn í umferð í flota þrettán flugrekenda sem flestir höfðu aðeins nokkrar flugvélar hver en þess má geta að Flugfélagið Ernir festi kaup í einni Dornier 328 skrúfuflugvél í febrúar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga