flugfréttir
Widerøe þarf að endurgreiða styrk til norska ríkisins
DeHavilland Dash-8 300 flugvél Widerøe
Norska ríkið mun að öllum líkindum krefja Widerøe um að greiða til baka hluta af upphæð sem flugfélagið fékk í styrk á síðasta ári.
Widerøe fékk 5.8 milljarða króna í ríkisstyrki til þess að geta haldið úti áætlunarflugi til minni bæja í Noregi en þar
sem flugfélagið þurfi að aflýsta mörgum flugferðum í fyrra hefur norska ríkið farið fram á að flugfélagið endurgreiði
þeim styrkinn að hluta til.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem norska ríkið fer fram á endurgreiðslu frá Widerøe en í fyrra þurfti flugfélagið að endurgreiða
til baka 80 milljónir króna vegna þeirra flugferða sem félagið felldi niður árið 2016 til áfangastaða í norðurhluta Noregs.
Ekki er vitað hversu mikið Widerøe þarf að greiða til baka að þessu sinni en í samkomulagi milli ríkisstjórnar Noregs
og Widerøe var farið fram á að félagið myndi halda úti a.m.k. 98.5% af flugáætlun sinni til þeirra áfangastaða sem
styrkupphæðin nær til.
Í yfirlýsingu frá Widerøe kemur fram að flugfélagið norska hafi átt í vandræðum með áhafnir síðasta sumar auk
þess sem tæknilegir örðuleikar gerðu félaginu erfitt fyrir en félagið segist hafa náð að laga vandmálin að mestu leyti og sé betur í stakk
búið í sumar til að halda úti flugáætlun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.