flugfréttir

EASA kynnir nýjar reglur varðandi geðheilsu flugmanna

- Nýir flugmenn þurfa að gangast undir sálfræðilegt mat í inntökuferli

26. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:02

Flugfélög í Evrópu þurfa að vera búinn að innleiða nýju reglugerðina innan tveggja ára

Evrópsk flugmálayfirvöld (EASA) hafa kynnt til sögunnar nýja reglugerð varðandi geðheilbrigði flugmanna og verður flugfélögum gert að nota nýja aðferð til að fylgjast með andlegri heilsu flugmanna og til þess meta geðheilsu nýrra flugmanna í ráðningarferli.

Reglugerðin er tilkomin í kjölfar þess harmleiks sem átti sér stað árið 2015 er flugmaður hjá Germanwings flaug Airbus A320 farþegaþotu vísvitandi inn í fjallshlíð í Ölpunum á leið frá Barcelona til Dusseldorf en í framhaldi af því var tekin upp svokölluð „tveir í stjórnklefanum“ reglan sem var töluvert gagnrýnd bæði af flugmönnum og flugfélögum.

Vægi andlegrar heilsu verður m.a. aukið við fluglæknaskoðun

Með nýju reglugerðinni sem EASA hefur nú kynnt til sögunnar, sem verður tekin í notkun árið 2020, verður reynt að koma í veg fyrir að slíkur atburður endurtaki sig en meðal annars verður séð til þess að allir flugmenn fái stuðningsþjónustu ef þeir eiga við andlega erfiðleika að stríða auk þess sem evrópskum flugfélögum verður gert að taka í notkun skimunarpróf og sálfræðilegt mat sem nýir flugmenn munu gangast undir áður en þeir verða ráðnir til starfa.

Með stuðningsþjónustu verður séð til þess að flugmenn fái aðstoð með fagfólki á borð við sálfræðinga til að yfirstíga persónuleg vandamál sem geta haft áhrif á störf þeirra.

Allir flugmenn gangast undir árlega fluglæknisskoðun þar sem líkamleg heilsa er athuguð en slík skoðun felur ekki í sér mat á andlegri heilsu.

Þá verður farið fram á að öll evrópsk flugfélög, og þau flugfélög sem fljúga til landa innan Evrópu, láti áhafnir gangast undir handahófskennt áfengispróf og þá verður einnig farið fram á að flugfreyjur og flugþjónar gangist undir próf gagnvart notkun áfengis eða geðlyfja.

Evrópsk flugfélög hafa tveggja ára aðlögunartíma til þess að taka upp og innleiða nýju reglugerðina en nokkur Evrópulönd hafa nú þegar tekið upp hluta af þessari reglugerð.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga