flugfréttir

Ryanair býður áhöfnum að flytja til Póllands eða missa vinnuna

- Verkfallsaðgerðir á færibandi næstu daga

27. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:34

Boeing 737-800 þota Ryanair

Hryna verkfallsaðgerða mun dynja yfir Ryanair næstu helgi þegar félagið mun fella niður allt að 40 flugferðir í byrjun ágúst og er enn von á fleiri verkfallsdögum.

Um er að ræða verkfallsaðgerðir meðal þeirra flugmanna Ryanair sem staðsettir eru í Dublin sem mótmæla ákvörðun Ryanair sem ætlar að draga úr umsvifum sínum á flugvellinum í Dublin.

Ryanair ætlar að fækka þeim þotum sem félagið hefur í Dublin úr 30 niður í 24 þotur í vetur með því að færa sex Boeing 737-800 þotur yfir í flota nýs dótturfélags sem stofnað hefur verið í Póllandi.

Ryanair hefur boðið um 100 flugmönnum og tvö hundruð flugfreyjum og flugþjónum upp á þann möguleika á að flytja til Póllands í október og fljúga fyrir nýja dótturfélagið ef það vill halda vinnunni.

Ryanair hefur boðið áhöfnum í Dublin að flytja til Póllands

Ryanair segir á vefsíðu sinni að mikill vöxtur sé framundan hjá nýja dótturfélaginu í Póllandi og sé meiri þörf á flugmönnum þar heldur en í Dublin yfir vetrartímann, þökk sé verkfallsaðgerðum írskra flugmanna sem hefur haft neikvæð áhrif á bókanir meðal farþega á Írlandi.

Færa flugvéla þangað þar sem eftirspurnin er

Félagið hefur sent 300 áhafnarmeðlimum á Írlandi bréf þar sem fram kemur að óvíst sé að óskað verði eftir starfskröftum þeirra eftir 28. október en til að koma í veg fyrir uppsagnir gæti viðkomandi þegið boð um að færa sig yfir til Póllands.

„Okkur þykir leitt að þurfa að grípa til breytinga á mannafla yfir veturinn 2018 en stjórnin hefur ákveðið að færa flugvélar yfir án þann markað þar sem eftirspurnin er mikil“, segir Peter Bellew, rekstrarstjóri Ryanair.

Í gær tilkynnti Ryanair að félagið myndi neyðast til þess að fella niður 20 flugferðir þann 2. ágúst en í dag hefur félagið ákveðið að fella niður aðrar tuttugu flugferðir þann 3. ágúst.

Verkfallsaðgerðir flugmanna Ryanair í Dublin eru ekki þær einu sem framundan eru því áhafnir á Spáni, í Portúgal, Belgíu og á Ítalíu hafa lagt niður störf sín sem hefur haft áhrif á áætlun félagsins.

Í síðustu viku þurfti Ryanair að fella niður margar flugferðir sem hafði áhrif á 50.000 farþega og er talið að annar eins fjöldi farþega verði fyrir barðinu á verkfallsaðgerðunum um mánaðarmótin.

Ryanair segir að allir þeir farþegar, sem eiga bókað flug með þeim flugferðum sem verður aflýst, verði bókaðir með öðru flugi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga