flugfréttir

Brak féll til jarðar á bílastæði frá MD88-þotu Delta í flugtaki

30. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:39

McDonnell Douglas MD-88 þota Delta Air Lines í flugtaki

Bilun í hreyfli á McDonnell Douglas MD-88 þotu frá Delta Air Lines varð til þess að brak úr hreyflinum féll til jarðar og lenti á bílum sem voru lagðir í bílastæði nálægt flugvellinum í Nashville í síðustu viku.

Þotan fór í loftið frá flugvellinum í Nashville í Tennessee þann 25. júlí á leið til Atlanta en í flugtaksklifrinu lýstu flugmennirnir yfir neyðarástandi þar sem þeir höfðu misst hægri hreyfilinn.

Vélin hætti við frekara klifur í 2.500 fetum og var flugmönnunum gert að snúa við og fengu þeir heimild til þess að lenda á annarri flugbraut á vellinum.

Fram kemur að málmbútar hafi fundist á jörðu niðri en brakið fannst á bílastæði hjá vatnsfyrirtæki í hverfinu Donelson, skammt austur af Nashville-flugvelli.

Starfsmenn fyrirtækisins sögðust hafa heyrt mikinn hávaða fyrir utan og stukku þeir út til að vita hvað væri á seiði en sjónarvottar sögðust hafa séð brak rigna til jarðar er þotan fór yfir sem lenti á bílum og braut meðal annars rúður.

Í yfirlýsingu frá Delta Air Lines kemur fram að verið sé að rannsaka hvað fór úrskeiðis og biður flugfélagið afsökunar á atvikinu.

Brakið sem féll til jarðar úr hreyflinum í flugtakinu







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga