flugfréttir
Flugmenn Ryanair í Hollandi íhuga einnig verkfallsaðgerðir
Farþegaþotur Ryanair á flugvellinum í Eindhoven
Spenna í samningaviðræðum milli flugmanna Ryanair og stjórnar félagsins hefur nú breytt úr sér yfir til Hollands en hollenskir flugmenn hjá Ryanair íhuga nú einnig að hefja verkfallsaðgerðir ef ekki verður komið til móts við óskir þeirra um betri laun.
Félag hollenskra atvinnuflugmanna VNV, sem er eitt elsta flugmannafélag heims, stofnað árið 1929, segir að
til standi að gefa stjórninni úrslitakosti áður en ákveðið verður að fara í verkfall.
Talsmaður VNV segir að mjög ólíklegt sé að Ryanair muni gefa eftir og stefnir því allt í að flugmenn félagsins
í Hollandi muni leggja niður störf sín.
Ryanair flýgur til og frá þremur flugvöllum í Hollandi sem eru Eindhoven, Amsterdam og Maastrich
en langmest eru umsvif félagsins í Eindhoven þar sem flogið er til 42 áfangastaða en frá Amsterdam flýgur Ryanair
til Dublin og Malaga og frá Maastricht til Alicante.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.