flugfréttir
Thomas Cook leigir Airbus A380 risaþotu af Hi Fly
Tölvugerð mynd af Airbus A380 í litum Thomas Cook en þotan er þó ekki í litum félagsins
Flugfélagið Thomas Cook hefur tilkynnt að félagið sé það fyrsta til að taka á leigu fyrstu Airbus A380 risaþotuna frá portúgölsku flugvélaleigunni Hi Fly.
Hi Fly fékk nýlega afhentar fyrstu tvær Airbus A380 risaþoturnar sem voru upprunalegu þær fyrstu sem afhentar
voru til Singapore Airlines fyrir 10 árum síðan en félagið skilaði þeim til eigenda sinna í fyrra eftir að félagið ákvað að
framlengja ekki leigusamningi á þeim.
Thomas Cook hefur þegar tekið við Airbus A380 risaþotunni sem flaug m.a. í dag frá Kaupmannahöfn
til Larnaca á Kýpur og til baka en á morgun verður henni flogið frá Osló til Mallorca og til baka.
Hi Fly hefur einnig tekið við annarri Airbus A380 risaþotu en ekki kemur fram hvaða flugrekandi hefur tekið þá þotu á leigu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.