flugfréttir

Norwegian tekur á leigu A380

- Verður notuð í flugi milli London Gatwick og New York JFK

3. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:16

Norwegian mun taka Airbus A380 risaþotu á leigu í að minnsta kosti þrjár vikur í ágúst

Tilkynnt hefur verið að Norwegian sé annað flugfélagið til að taka Airbus A380 risaþotu á leigu frá portúgölsku flugvélaleigunni Hi Fly.

Norwegian segir í tilkynningu sinni að félagið hafi tekið á leigu A380 risaþotu frá Hi Fly til þess að nota í áætlunarflugi í nokkrar vikur í ágúst og verðu hún notuð á flugleiðinni milli London Gatwick og New York.

Risaþotan mun hlaupa í skarðið í stað nokkurra Dreamliner-þotna Norwegian sem félagið hefur átt í erfiðleikum með vegna vandamála með Trent 1000 hreyfla en það vandamál hrjáir einnig fleiri flugfélög sem hafa Boeing 787 í flota sínum með Rolls-Royce hreyfla.

„Þetta mun vara í mesta lagi í 20 daga og mun fyrsta flugið hefjast mjög fljótlega“, segir talsmaður Norwegian án þess að gefa upp nánari upplýsingar með þær dagsetningar sem félagið ætlar að nota Airbus A380.

Leigan á Airbus A380 risaþotunni verður sennilega mun dýrari fyrir Norwegian en þegar félagið tók á leigu Boeing 747 þotu frá spænska flugfélaginu Wamos Air en farþegar kvörtuðu mikið yfir þeirri júmbó-þotu þar sem mörgum fannst aðbúnaðurinn og innréttingarnar ekki upp á marga fiska.

„Það skaðar ímyndina að eiga von á því að fljúga með nýrri Dreamliner-þotu en enda svo uppi í gamalli Boeing 747“, sagði Bjørn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian í seinasta mánuði.

Þann 1. ágúst greindi Hi Fly frá því að Thomas Cook væri fyrsti viðskiptavinurinn til þess að taka á leigu Airbus A380 risaþotu frá fyrirtækinu sem tók nýlega við tveimur risaþotum sem Singapore Airlines skilaði eftir að hafa haft í rekstri frá árinu 2008.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga