flugfréttir
Jet Airways biður flugmenn um að sættast á launalækkun
- Vara við því að flotinn verði kyrrsettur innan 60 daga
Boeing 737 þota Jet Airways á flugvellinum í Mumbai
Indverska flugfélagið Jet Airways hefur varað flugmenn sína við því að félagið gæti hætt rekstri tímabundið og kyrrsett allan flugflotann ef ekki finnst niðurskurðarlausn á næstu 60 dögum.
Meðal þeirra leiða sem félagið segir að standi til boða sé að grípa til launalækkanna og er flugmönnum boðið
að taka að sér 15% launalækkun í a.m.k. tvö ár til að komast hjá því að missa vinnuna en Jet Airways segir að lausafé félagsins sé að verða uppurið.
Stjórn flugfélagsins hefur einnig skoðað möguleika á því að selja eignir, skera niður í viðhaldsdeild ásamt öðrum
leiðum í von um að það gæti dregið úr taprekstri félagsins og hafa viðræður farið fram við hlutahafa félagsins.
Fram kemur að hækkandi verð á þotueldsneyti sé farið að verða stór baggi fyrir reksturinn auk þess sem gengi
indverska gjaldmiðilsins sé farið að veikjast.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Jet Airways biður flugmenn um að taka á sig launalækkun en í júlí í fyrra
bað félagið yngri flugmenn um að þiggja launalækkun upp á 30 til 50% ef þeir vildu halda starfinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.