flugfréttir

Ruglaðist á vegi og flugbraut og hélt aðfluginu áfram

- Mistök við að hætta við lendingu talin orsök flugslyss

3. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:16

Flugvélin var skráninguna N2259Q

Mistök við að hætta við lendingu og fara í fráflug í aðflugi að flugvellinum í Hamburg í New York fylki í Bandaríkjunum er talin orsök þess að lítil flugvél af gerðinni Piper Archer PA-28 brotlenti í lendingu.

Flugmaðurinn kom of hátt inn í aðfluginu þar sem hann ruglaðist á vegi sem liggur í sömu stefnu hinumegin við flugbrautina.

Síðar í aðfluginu gerðir flugmaðurinn sér grein fyrir mistökunum og gerði flugumferðarstjóranum viðvart og ætlaði hann sér að nota framskrið („side slip“) til þess að lækka hraðann auk þess sem hann dró allt afl af mótornum og setti niður lendingarflapa.

Flugmaðurinn lenti fyrir aftan miðja braut þegar um fjórðungur var eftir af brautinni sem varð til þess að flugvélin fór út af brautinni.

Flugvélin fór út af flugvallarsvæðinu og rakst hægri vængur vélarinnar utan í vegriði við umferðargötu sem liggur meðfram flugvellinum auk þess sem lendingarbúnaður á vélinni féll saman.

Atvikið átti sér stað í ágúst árið 2016 en í lokaskýrslu frá samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) kemur fram að orsök slyssins sé mistök flugmannsins um að hætta ekki við lendinguna og fara í fráflug.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga