flugfréttir
Fimm ATR vélar til Iran Air þrátt fyrir viðskiptabann
- Staðráðnir í að fá allar þær flugvélar sem pantaðar hafa verið
ATR flugvélarnar fimm sem afhentar voru um helgina til Iran Air
Iran Air ætlar ekki að gefast upp við að fá nýjar farþegaþotur í flotann þrátt fyrir að Bandaríkin hafi afturkallað viðskiptaþvinganir á Íran en flugvélaframleiðandinn ATR afhenti um helgina fimm flugvélar til félagsins af gerðinni ATR 72-600.
Flugvélarnar fimm fór á sama tíma í loftið frá Toulouse að kvöldi laugardagsins 4. ágúst með einnar mínútu
millibili og komu þær við í borginni Urmia í norðurhluta Írans til að taka eldsneyti.
Vélarnar voru komnar til Teheran að morgni 5. ágúst þar sem fram fór móttökuathöfn þar sem
Farzaneh Sharaafbafi, framkvæmdarstjóri Iran Air, sagði í ræðu sinni að afhendingin væri merki um „ósigur“
fyrir þá einhliða ákvörðun sem Bandaríkjamenn tóku í vor um að setja aftur á viðskiptaþvinganir á landið
sem búið var að afnema.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, afturkallaði ákvörðun stjórnvalda um að aflétta viðskiptaþvingunum við Írani í maí og breytti þar með kjarnorkusamkomulaginu sem undirritað var árið 2015 sem varð til þess að Íranir pöntuðu hundruði flugvéla frá Boeing, Airbus og fleiri framleiðendum.
ATR 72-600 flugvélunum fimm var flogið frá Toulouse til Teheran þann 4. ágúst
ATR vélarnar fimm afhendust því í tæka tíð fyrir 7. ágúst en þá verða viðskiptaþvinganirnar teknar upp að nýju á Írani og er óvíst hvernig fer með afhendingar á öllum þeim flugvélum sem Iran Air hafði pantað frá Boeing, Airbus og ATR.
Sharafbafi segir að Iran Air ætli ekki að láta þessa ákvörðun hafa áhrif á afhendingar á nýjum flugvélum. „Við annað hvort finnum leið eða þá búum til leið ef við finnum hana ekki“, segir Sharafbafi.
Iran Air tók við þremur Airbus-þotum á síðasta ári en félagið hefur ekki tekið við neinni þotu á þessu ári þrátt fyrir
að félagið eigi von á 97 þotum sem pantaðar hafa verið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.